Apr
19

Þar sem regnboginn endar

Óháði söfnuðurinn, Reykjavik

April 19, 2026, 4:00 pm

Með hið glæsilega svarta Hammond-orgel Óháðakirkju í miðpunkti mun Hammond-snillingurinn Andreas Hellkvist leiða okkur í ferðalag um ástina, friðinn, tónlistina og allt það dásamlega sem vonast má til að finna við enda regnbogans. Og hann hefur lofað að gera það allt á íslensku!

Efnisskráin samanstendur af djasslögum, dægurtónlist, íslenskum og sænskum melódíum ásamt hans eigin tónsmíðum. Það verður meira að segja alþjóðleg frumflutningur á dagskránni – Andreas mun flytja nokkur verk úr „Quadraphonic“ verkefni sínu í fyrsta skipti utan Svíþjóðar. Þar er Hammond-orgelið tengt við fjóra hátalara sem munu umbreyta rýminu í eitthvað sem erfitt er að ímynda sér fyrr en maður er mættur á staðinn – við enda regnbogans.

Andreas hefur margsinnis spilað í kirkjunni áður. Í fyrra hélt hann tónleika í maí ásamt Eyþóri Inga, og einnig einleikstónleika í september. Hammond-orgelið í Óháða söfnuðinum er hans eftirlætis hljóðfæri í öllum heiminum.

Orð Andreasar:

„Í ár eru tíu ár liðin frá fyrstu heimsókn minni til Íslands. Ég hef alltaf fundið fyrir sterkri tengingu við eyjuna og fólkið sem hana byggir. Óháði söfnuðurinn og Hammond-orgelið þar hafa ávallt spilað stórt hlutverk í þeirri tengingu, en síðast þegar ég var hérna, í september í fyrra, varð upplifunin andleg á nýju plani. Ég var á leið í kirkjuna fyrir tónleikana mína og gekk meðfram Háteigsvegi. Það fór að rigna á dæmigerðan íslenskan máta, þar sem sólin og regndroparnir mætast. Þá birtist regnbogi á himninum sem endaði nákvæmlega við Óháðakirkju, þangað sem ég var á leið. Þetta var svo kröftug upplifun. Ég fylltist lotningu og komst næstum við af svo sterkri tilfinningu fyrir því að ég ætti hér heima. Þetta veitti mér innblástur að þessari tónleikadagskrá. Ég hlakka alltaf til að spila á Hammond-orgelið í Óháða söfnuðinum, og í þetta sinn enn meira en nokkru sinni fyrr.“

Ticket price: ISK 2500

Get tickets here
Andreas Hellkvist solo @ Óháði söfnuðurinn, Reykjavik on September 6, 2025 8:00 pm
Photo: Palli Kristmundsson

Lineup

Andreas Hellkvist – Hammond

Venue

Óháði söfnuðurinn, Reykjavik

Háteigsvegur 56

Reykjavik

To venue

Organ

Documents